|
Könnun
Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
|
08.06.2008 20:32:16 / thorunnk
»
13.03.2008 20:44:08 / thorunnk
»
09.03.2008 20:44:46 / thorunnk
Hæhæ kæru vinir
... svoldið síðan ég hef látið heyra í mér, but here I am again !!!
Sprellifandi og spræk eins og ávallt þó svo að bloggið mitt hafa legið
niðri mjög lengi. Hvernig er stemningin á BlogCentral.is þessa dagana ?
Eitthvað nýtt að gerast ?
Hvað er að frétta af stelpunni henni
Tótu ? Júmm bara allt gott, lífið er gott þó mar eigi sím moment sko,
jebbs. Skrapp með fjölskyldunni til Florida í janúar, það var geggjað
alveg, mæli með því. Úr myrkrinu í sólina og hita, skemmtun út í eitt
og já svo var verslað smá ! Ekki búin að ákveða hvað gera skal í
páskafríinu, hvert liggur leiðin helst hjá ykkur ? Kannski smá bústað
og chill og heima að borða góðan mat með góðu fólki.
Talandi
um mat, þá skrapp ég út i gær að borða á Brons (gamla Kaffibrennslan),
mæli með þessum stað, mjög góður matur og kosy staður. Síðan var aðeins
kíkt á APótekið að dilla sér, mjög skemmtilegt og þvílíkt mikið af
fólki í bænum, sennilega árhátíðartíminn núna aðal.
FACEBOOK er málið í dag , endilega skella sér að skrá sig þar www.facebook.com, það er ágætis afþreying og félagslíf.
Ætla skella mér í sófann og horfa á RÚV.
Góða vinnuviku framundan, það styttist í PÁSKAFRÍ !
Knús,
Tóta
»
31.08.2007 16:56:28 / thorunnk
Skrifaði textann upp eftir eyranu (óritskoðað Rooftop Ain´t easy to be up these days you´re gone I´m alone don´t know what to do ohh my world has been going down in strings there´s a new color blue painted on the walls I feel like going nuts right now see the man turn to clown take a look at my head My world is spinning round and round feels weird to be me don´t know what I´m doing Eight days have gone since my life fell to pieces the only thing for me to do is to run away I´m sitting on a rooftop laughing my head off singing every silly song I know I´m having a great time I´m dreaming you´re mine It´s too bad I´m alone in this funny world Is there no one who can tell me what I´m to do I´m to say what to brake to let out these feelings that have filled my heart come relieve tell a joke make me smile again I think I´m going mad in strings feels weird lost cope will someone help me About to get desperate here my eyes turning red my heart getting colder Eight days have gone since my life fell to pieces the only thing for me to do is to run away I´m sitting on a rooftop laughing my head off singing every silly song I know I´m having a great time I´m dreaming you´re mine It´s too bad I´m alone in this funny world Enjoy  Knús, Tóta
»
03.06.2007 23:06:35 / thorunnk
Hæhæ, hvernig er heilsan ? Já það fer að skella á
sumarfrí hjá minni og það ekki seinna en á föstudaginn
næstkomandi.... og ég er bara alls ekki komin með á hreint hvað
skal gera skemmtilegt í fríinu, þó hafa ýmsar hugmyndir skotið
upp kollinum síðustu daga einhverjar tillögur ? Annars er ég
búin að hafa það svo rosalega gott undanfarna daga....uhmmm
alveg eins og prinsessan á bauninni bara   . Bláa lónið á
föstudaginn eftir vinnu, þvílíkt ljúft þrátt fyrir smá rok og
rigningu þá hafðist svakalega góð afslöppun þarna svamlandi um
lónið og í gufunum... uhmmm. Síðan út að borða á Northern Light
Hotel þarna í hrauninu, alveg dýrindis matur á vægu verði, mæli
með að þú skoðir það í næstu ferð !!! Svaf eins og engill þessa
nótt. Laugardagskvöld var minni boðið út að borða jebbs,
aftur og nýbúin, á Caruso rosalega notalegur staður og síðan smá
rölt um bæinn á eftir. Fyndnast var að sjá alla reykingamenn ÚTI
að húkast í roki og rigningunni að sjúga inn hinn eitraða reyk
og tjöru. Svefn, já það er eitthvað sem ég hef fengið góðann
skerf af þessa helgina enda skuldaði ég helling. Skellti mér
á laugaveginn í dag, jamm rok og rigning líka, ekki mjög margt
um manninn og þó. Alltaf stemning að rölta í miðbænum finnst
mér, svona alvöru bæjarferð, og já versla smá líka. Svo er
það bara 5 vinnudagar og bamm sumarfrí í 4 vikur ....
Hafðu það best og haltu áfram að brosa . Knús, Tóta.
»
27.05.2007 12:41:56 / thorunnk
Góðann daginn
!
Jamm er nokkurnveginn nývöknuð og enn á náttfötunum, jebbs er ein
af þeim sem sefur enn í náttfötum tíhí. Gleðilega
Hvítasunnuhátíð ágætu landsmenn. Margir eru á faraldsfæti og ekki
heima þessa helgina, það á líka við um í okkar lita fjölbýli,
svakalega rólegt og notalegt, engin gormaóhljóð í trampolínum .
Við mæðgur fórum í stúdentsveislu í gær, geggjað fjör ... fór að
telja ... úps, já 18 ára stúdent komst ég að (omg) well amk tíminn
stendur ekki í stað, hlýtur að vera gaman að lífa . Annars er það
bara MEGA aflsöppun hjá mér og snúllunni lítlu minni, erum bara að
chilla heima í hreiðrinu og gera mest lítið. Ætla þó að taka aðeins
til í húsinu og baka eins og eina afmælisköku jamms, senior
skvísan ME á afmæli   og það mæta líklega bara nokkrir vinir
og ættingjar í kaffi til mín . Lifð heil og hafið það best.
Knús, Tóta.
»
04.03.2007 22:38:08 / thorunnk
»
17.02.2007 17:38:55 / thorunnk
Hæhó, langt
síðan ég hef skráð inn færslu hér ... yndislegt veðrið úti.
Sú stutta mín heimtaði að fá hjólið sitt út, já það er svo
sannarlega tækifæri til þess núna að hjóla meðan frostlaust er.
Anyway, eftir að hafa pumpað svoldið í dekkin eftir vetrardvöl
fáksins í kjallaranum, þá var hún klár af stað skvísan mín
ekkert smá kát að leggja af stað og þá sérstaklega stolt yfir að
hafa engu gleymt ... þ.e. að hjóla án hjálparadekkja Annars
er hún dúllan mín litla að ná sér eftir veikindi í síðustu viku,
háan hita og hálsbólgu, ekki gaman. Hún dóttir mín, já og við
mæðgur báðar, erum yfirleitt mjög hraustar, eiginlega bara
aldrei veikar, nema þegar við veikjumst þá er það almennilegt
Jr. skvísan er þó öll að hressast, en mamman er farin að fá smá
kitl í hálsinn . Það er löng helgi hjá okkur að þessu sinnu,
vetrarfrí í skólanum í næstu viku og öskudagsball á
miðvikudaginn í skólanum ... versluðum eitt stk maríuhænubúning
í dag, svakalega krúttlegt. Helgarplanið er því ... ná sér
almennilega uppúr veikindum, þrífa, leika sér og slappa af
ahhh... og baka bollur audda  !!! Hafðu það sem allra best.
Knús, Tóta.
»
14.01.2007 21:17:58 / thorunnk
Smá fréttir af
mér svona eftir að fyrstu vikur ársins eru liðnar. Nýja
árið byrjaði með vinnu, já mín var sett á vaktina þann 1. jan af
öllum dögum, en það var svosem ágætt bara, nema gamlárskvöld var
heldur öðruvísi djammlega séð þetta árið, tja það koma önnur
gamlárskvöld og ég stend mína vinnuskyldu líkt og aðrir (ágætt
fyrir budduna líka svona í byrjun árs ). Svo vorum við mæðgur
í fríi saman heima 2. og 3. jan, yndislegt alveg... bara vera
heima og gera "ekki neitt" eða þannig u know. Sendi jr. skvísuna
í skólann 4. og 5. jan en var sjálf áfram í fríi    ...
þetta er eitt það besta sem ég hef gert að taka frí á þessum
tíma ... sofa, slaka á, lesa, HUGSA, já hugsa ... þegar mar er
alltaf á fullu, staldrar mar sjaldan við til að tæma hugann og
hugsa, þetta var eitt það mikilvægasta sem gerðist í þessu fríi
... leysti barasta nokkrar ráðgátur og fékk brilliant nýjar
hugmyndir    !!!! Síðan byrjaði vinnan aftur og ég er bara
nokkuð klár í slaginn, nóg að gera amk.... en vonandi betra
skipulag og skýrari markmið. Ræktin hefur aðeins verið í pásu
... er að vinna í nýjum markmiðum þar líka.... hlakka til að
byrja aftur og taka vel á ... gefur mér aukna orku bæði
líkamlega en ekki síst andlega líka ... Well, læt þetta gott
heita í bili. Hafðu það gott og lifðu núna ! Knús,
Tóta.
»
31.12.2006 17:27:36 / thorunnk
Kæra fjölskylda,vinir og bloggarar. Gleðilegt ár,
takk fyrir
samfylgdina á árínu sem er á líða. Bestu óskir um
hamingju,
gæfu og gleði á komandi ári 2007. Hlakka til að sjá
ykkur og
heyra í ykkur á nýju ári.
Áramótaknús, Tóta.
»
29.12.2006 02:04:54 / thorunnk
Komdu um jólin, vertu
hjá mér .... mig langar að hafa þig hér. Já, svona eru jólin,
samvera með fjölskyldunni, gleði, knús og væntumþykja. Ekkert
sem toppar þennan tíma. Við systkynin vorum öll 4 samankomin með
okkar börn og buru ..... yndislegt að eiga fjölskyldu, alltaf
kann ég að meta það betur og betur.ÉG er búin að hafa það gott
og borða mikið af mat og konfekti og drekka svoldið sherry og
púrtvín, ójá mín var svoldið kvefuð líka   Yndislegt alveg
bara. Verst að þurfa að vera vinna svona nokkra daga um jólin og
milli jóla og nýárs....hmmmm... íhuga að sækja um frí yfir jólin
á næsta ári.... já er það ekki bara ??? Annars fæ ég nokkra daga
frí á nýju ári, það verður yndislegt, með litlu snúllunni minni
Í dag voru svo pönnsur hjá litla brósa og annaðkvöld er öll
familien væntanleg í mat til mín... 13 manns !!!!!!!!! Svakalegt
stuð... matseðillinn er að komast á lokasprettinn segi ykkur
kannski frá því seinna bara   hehehhehe. Annars stefni ég
að smá djamm á laugardaginn þar sem ég er að vinna á nýarsdag
.... já nokkuð aumt ha ... en svona er að vinna á stað sem
aldrei lokar góðir landsmenn, alltaf einvher á vaktinni 
Lifið heil kæru vinir, takk fyrir samfylgdina á árinu 2006.
Gleðilegt ár !!!!!!!
Áramótaknús, Tóta.
»
10.12.2006 18:58:27 / thorunnk
Hæhæ kæru vinir og vandamenn ... það er
komin 10. desember og fyrir mig þýðir það bara eitt, ég er
búin í skólanum og búin að skila ÖLLUM verkefnum    
!!!!!!! Ég er svo kát og glöð að það nær engri átt
     . Nú geta jólin byrjað, jebbsíjeijó og mín var að
enda við að setja greniskreyttu jólaljósin á svalirnar (sú
síðasta í stigaganginum, en seint koma sumir en koma þó
!!!). Síðan er bara að halda áfram og gera íbúðina kosý,
stuðstuðstuð. VAr líka að losa mig við megahaug af dagblöðum
og ruslpósti, úffúff, hvers á mar að gjalda að þurfa að bera
þetta allt út, ekki bað ég um þessi rit hmmmm... anyway.
Annars tók ég forskot á sæluna í gær og fór út að borða með
vinum mínum á Galileo... skötuselurinn var smakkaður uhmmm
rosagott með ljúffengu hvítvíni, Mojito klikkaði ekki á
Thorvaldsen, aha, síðan kíktum við á Hressó þar sem ljúfir
gítartónar og söngur gladdi hjörtu okkar og sálir takk
fyrir mig , geggjað gaman. Ekki sakaði svo að EM í sundi
var á RÚV í beinni og Eurosport (sem ég feela í botn) ...
heimsmet hjá skvísunni henni Laure Manadou, hún er ekkert smá
flott OG já við fengum brons þegar Örn Arnar kom þriðji í
mark í 50 metra flugsundi, geggjað alveg - áfram ÍSLAND !!!
Jæja kiddos, á leið til mömmu í mat, það klikkar ekki.
Heyrumst síðar, hafið það sem allra best og sleppið alveg
jólastressinu, bara að njóta þess að vera til OK ?! Knús,
Tóta.
»
19.11.2006 17:21:46 / thorunnk
»
19.11.2006 17:19:31 / thorunnk
»
19.11.2006 17:18:20 / thorunnk
»
Síður: 1 2 3 ... 13
|
|